Sumarið ekki komið.....

Sumarið ekki komið ennþá hér á norðurlandi og þá er skollið á með ófærð á heiðum, hverslags er þetta. Ég annars verð að segja það að ég bíð enn eftir sólinni sem ég eftirminnilega var samvistum við í fyrra sumar hér fyrir norðan. En svona er þetta stundum - ætli þau hafi það erfiðara þarna á suðurhorninu og hafa þess vegna fengið að njóta góðs sumars? - það væri þá  það eftir allt saman.  Ætti ég að útskýra sólarleysið á mínum heimaslóðum með því  - að hér búa aðeins jaxlar sem láta ekkert brjóta sig - já ég held það bara Grin

Ætli viðri til kartöfluuppskeru á morgun?


mbl.is Mikil hálka á Öxnadalsheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Sólarsamba að sunnan!

Björn Birgisson, 26.9.2009 kl. 23:55

2 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

Lagði mig í dag - dreymdi svartar kindur - einhver myndi segja að það væri fyrir snjóléttum vetri.

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 27.9.2009 kl. 00:10

3 Smámynd: Björn Birgisson

Nei, svartar kindur boða nýliðun á Svörtuloftum við Kalkofnsveg. Einnig stopular skipakomur á Hornafirði. Dream on!

Björn Birgisson, 27.9.2009 kl. 00:17

4 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

Úbbbbbssss þar fór sú von um snjólétta veturinn. Aumingja Hornfirðingarnir hehehe

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 27.9.2009 kl. 00:20

5 Smámynd: Björn Birgisson

Síðustu nótt dreymdi mig að ég væri á Grænlandi. Mætti ísbirni sem var að reykja KOOL, eins og ég geri. Hann hvarf svo út á ísbreiðuna áður en ég náði að klappa honum. Getur þú ráðið þennan draum?

Björn Birgisson, 27.9.2009 kl. 00:31

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þessi draumur er bara góður, já hann er fyrir byrjun olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
Þetta er nú meira ruglið í mér.

Held að þetta sé nú bara hausthret Ásta mín,sem við fáum núna síðan verði góður kafli, annars voru mýsnar farnar að sjást hér úti fyrir löngu og það veitir á harðan vetur
Kveðjur til þín Ásta mín.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.9.2009 kl. 08:25

7 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

a) Björn þessi draumur er undirmeðvitund þín sem er að segja þér að þú átt að hætta að reykja - þú ræður ekki við þetta lengur. 

b) Það kemur til greina að þú flytjir til Grænlands um stundarsakir, þú ert efins og finnst þú standa á krossgötum.

 c) Ísbjörn er í draumnum samfylkingin ( Jóhanna Sig kemur í draumnum í ísbjörnslíki)   Hún er ekki sá vinur þinn sem þú heldur  og yfirgefur þig áður en langt um líður.  Held að dagar Jóhönnu séu senn taldir.

Milla - það er alltaf best að lesa í náttúruna sjálfa til um veðurfar.  Mér er sama þótt snjói bar að verði ekki rigninga og vindasamt.

Morgunkveðjur til ykkar 

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 27.9.2009 kl. 10:37

8 Smámynd: Björn Birgisson

Líst best á A.

Björn Birgisson, 27.9.2009 kl. 12:13

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þær mættu koma aftur gömlu góðu vetrarstillurnar, allt á kafi í snjó og stillur í margar vikur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.9.2009 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjargfrúin

Höfundur

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Frúin á Bjargi hefur skoðanir á öllu :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...1290_826126
  • ...dscn1290
  • Mynd032
  • Mynd031
  • IMG 4297

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 30013

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband