Skál úr brotnu gleri

Einhvern tímann, það var í framtíðinni að ég sá þessa skál. Það er svo langt þangað til að að ég sá hana að mér er ómögulegt að sjá brot lita hennar nema loka aftur augunum og einbeita mér mjög að þessum tíma.  Þessi skál er falleg - meira en það hún er fögur - ekki bara fögur á að líta - heldur fögur jafnt utan sem innan.  Ég var heilluð af þessari skál, gat ekki slitið augun af henni og fann fyrir nánast sjúklegri þörf fyrir að snerta hana og fá að líta yfir barma hennar til að kanna hvað leyndist í svona fallegri skál.  Borðið sem hún skreytti var voldugt  en þó undarlega fyrirferða lítið þar sem það  stóð á sjó og landi.... Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hvort var og ekki að það væri aðalatriðið.  Hugurinn var hjá skálinni, þessum dýrgrip sem púslað var saman úr þúsundum glerbrota, glerbrota sem rötuðu hvert á sinn stað í þögninni.  Það var þögnin - þegar þögnin komst á þá fundu brotin hvort annað.

Síðan brosi ég þegar ég minnist skálarinnar úr brotnu gleri því ég hef aldrei séð neitt fegurra en gimsteinana sem hún geymir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Skálin er innan seilingar.  Það er hugur okkar sem skapar verleikann sem við lifum.  Þess vegna er svo mikilvægt að dreyma góða drauma.  Hold on to your dream.

Magnús Sigurðsson, 5.10.2009 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjargfrúin

Höfundur

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Frúin á Bjargi hefur skoðanir á öllu :)
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...1290_826126
  • ...dscn1290
  • Mynd032
  • Mynd031
  • IMG 4297

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband