30.9.2008 | 19:08
Það segir svo sem ekki neitt
Það með þetta að það er farið að snjóa niður að byggð, isss ekkert að marka, spáir hlýnandi aftur eftir helgi.
Það er svo ótrúlega gaman þegar fyrsti gráminn fer að koma á haustin því þá sér maður svo vel huldubyggðirnar. Ljós í gluggum á ólíklegustu stöðum og það er bara gróska í byggingaiðnaðinum hjá þeim. Annað en hér í mannabyggð sem varla hefur verið negld spýta í mörg, mörg ár fyrr en í sumar þegar byggður var áfangi við leikskólann. En samt... það er ótrúleg gróska hér í sumar og frístundahúsum inn allann fjörð, þegar ég fer að hugsa um það þá eru þetta ekkert smá hús sem verið er að reisa á sumum lóðunum. Hver segir svo að það sé ekki byggt í Ólafsfirði.
Annars er það að frétta að Mánaberg kom inn á sunnudag, sjöundi bekkur fór í Reykjarferð og Rassmaran glottir sem aldrei fyrr út og suður af Brimnestanga ullllllllla bara á hana ég með minn fína bakhluta.
Um bloggið
Bjargfrúin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 30208
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ásta dísin mín hringdi í mig og sagði mamma það er farið að snjóaHún býr á Norðfyrði og er ángð þar en það er bara snjór í fjöllunum sagði hún svo Kveðja og knús rugludalladósin suður með snjó
Ólöf Karlsdóttir, 1.10.2008 kl. 00:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.