13.1.2009 | 21:00
Koníakstofa og Marjúana
Eins og þið vitið þá á ég Koníakstofu, gasalega lekkert og notaleg vistarvera Þeir sem halda öðru fram að þeim sé aldrei boðið neitt þar muna bara ekkert eftir því, því þeir kunna sér ekki hóf í Koníakstofunni minni. Nú er ég viss um að sumir halda að ég sé gjörspillt með Koníakstaup í annarri og Marjúana í hinni. Systir mín á það nefnilega til að skjóta á mig ef ég skrifa eitthvað (sem henni finnst ferlega geðveikt) hvað ég hafi verið að reykja. Og ekki hefur það skánað síðustu daga, ég er bara farin að hafa verulegar áhyggjur af mér. Pólverjarnir mínir halda því orðið fram að ég sé inn í kompu og bak við ker að reykja Marjúana alla daga í vinnunni........ það geti bara ekki verið að einhver sé svona happy og liggi í hláturkasti mörgu sinnum á dag. Einn er orðin frekar ágengur hvar ég fái þetta Marjúana, ég auðvita segi þeim að ég rækti það sjálf í eldhúsglugganum hjá mér. Heee fer vel við nýju gardínurnar. OMG nú verður það næsta sem ég veit að Jón Lögga og Bjössi brj.....standa inn á miðju eldhúsgólfi hjá mér að leita að einhverju ólöglegri ræktun sem eftir fréttum að dæma er ræktað orðið í öðru hverju húsi í spillingaborginni Reykjavík.
Og ekki nóg með þessar happypælingar um mig í vinnunni sko lyftaradrengurinn vinur minn , sem ber einnig Evrópumeistartitil í samkvæmisdönsum úlalallalalala er líka orðinn handviss um að Kiddi í Garði sé minn loverboy, eitthvað finnst honum vafasamt á milli okkar og grunsamlegt að grípa okkur tvö á kjaftinum út við vegg eða inni í gömlu síldarþrónni.
Segið svo að aldrei gerist neitt smjatt smjatt
Um bloggið
Bjargfrúin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 30208
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú segist líka hafa fengið mig lánaða á Geðdeildinni forðum, boðið mér í mat á einhverju flottu veitingahúsi á Akureyri það á víst að hafa kostað morðfjár.
Ekki veit ég á hvað sveppaflippi þú hefur verið þá en það get ég sagt þér að ÞAÐ GERÐIST ALDREI.
Svo er það koníaksstofan ef svo vill til að ég hef drukkið koníak þar þá hef ég örugglega komið með það sjálf.
Vallý ekkert skál, ská, en hún kemur í mat til mín í kvöld
egvania, 14.1.2009 kl. 17:52
Fékk hangikjöt það var frábært en þurfti að gera uppstúfinn sjálf fyrir þau.
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 15.1.2009 kl. 17:28
Ég er nú farin að hafa smá áhyggjur af Ólu, held hún hafi horfið ofaní kassa með spiladósunum.
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 16.1.2009 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.