21.8.2009 | 11:43
Einhver rigningarderringur í honum
Vaknaði við þessa líka brjáluðu rigningu og rok og þegar kíkt var út um eldhúsgluggann þá kom í ljós að snjóað hafði niður í miðjar hlíðar. Skárra er það nú hnusss bara. Ég hef pínu áhyggjur af draslinu sem ég henti út úr duldu eigninni minni. Þarna liggur það og vonandi ekki fokið út um allt, ég ætlaði að henda því í dag úfff svona er að bíða til morguns Nennti ekki að taka þetta eftir að vera búin að koma fimm kerrum í gámana í gær. Þýðir ekki að hugsa um það.
Er að hugsa um Icesave, skiptar skoðanir hjá þjóðinni. Ætli það hafi eitthvað með veðrið að gera ef við einföldum þetta og förum eftir veðrinu í sumar á landinu. Þá lendi ég þeim megin sem hefur rignt nánast sleitulaust, hinir eru í sól hmmmmmm Það er sagt að skíni sól og rigni jafnt á réttláta sem rangláta. Hvoru megin ætli skoðun mín liggi að Icesavemálinu? Er ég í réttlátahópnum eða hinum? hehehe
Það er spurningin stóra.
Um bloggið
Bjargfrúin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í Icesave drullumallinu eru allir Íslendingar í rangláta hópnum.
Björn Birgisson, 21.8.2009 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.