24.9.2009 | 23:18
Já vááááa
Það er ekki logið að við erum nafli alheimsins, ekki mikið að gerast í öðrum löndum ef þetta er fréttaefni þar. Ég t.d. hef gassalegan áhuga á að vita hverjir eru ritstjórar hinna ýmsu fréttablaða - mitt aðal áhugamál eða þannig.
Held að fólk sé að tapa sér í bullinu að velta sér upp úr hver er ritstjóri Morgunblaðsins, get veðjað að 99% prósent þjóðarinnar veit ekki hver er ritstjóri Fréttablaðsins eða hvað fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins heitir.
Ráðning ritstjóra vekur athygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bjargfrúin
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert að misskilja samhengið Snjólaug. Við erum ekki að tala um Lása löggu eða Andrés önd, heldur yfirmatreiðslumann hrunsins á Íslandi.
Og hann á að ritstýra stærsta fjölmiðilnum í umfjöllun um orsakir hrunsins.
Er ekki hissa þó erlendir fréttamiðlar klóri sér í höfðinu.......
hilmar jónsson, 24.9.2009 kl. 23:26
Tek undir með þér, Snjólaug. Held reyndar að 99% sé svolítið gróf spá hjá þér. Ætli 93% væri ekki nær lagi...
Emil Örn Kristjánsson, 25.9.2009 kl. 00:02
Davíð hefði verið best geymdur og gleymdur í sumarbústaðnum sínum.
Björn Birgisson, 25.9.2009 kl. 00:08
þetta verður þá aldeilis til að vekja traust erlendis á að hér sé tiltektin á fullu,ASG lánið hlýtur að koma fyrir helgi þegar þeir sjá hvað hér er mikil nýliðun í öllu....
zappa (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 01:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.