Það á ekki af mér að ganga

Eins og Íslendingar margir hverjir þá hef ég þann vana að segja "jæja"  t.d þegar ég ætla að hafa mig að vinna eða hef bara ekkert þarfara að segja.  Nú þetta segi ég af og til í vinnunni og Pólverjarnir urðu til að byrja með afskaplega kindarlegir á svipinn, síðan hlógu þeir  óskaplega og fóru að segja "jæja, jæja" þegar ég sagði jæja.  Mér fannst ekki par neitt merkilega fyndið að segja "jæja" eftir t.d. kaffið og standa upp til að hafa sig að verki.  En einhverra hluta vegna varð þetta "jæja" að ægilegri kátínu daginn út og inn.  Svo var það einn daginn að  litla krúttið mitt, sá yngsti í hópnum, ég er nokkurn veginn búinn að taka hann í fóstur.  Hann sem sagt sagði við mig yfir borðið "Ásta veistu ekki hvað jæjæ er á pólsku"  ég bara " ha nei, hvað"   Drengurinn benti eitthvað niður fyrir sig og kafnaði síðan í hlátri.   Ég vissi ekki hvað var í gangi og eitt spurningarmerki og það var ekki fyrr en einn eldri og sjóaðri  sem þorði að hafa sig eitthvað meira frammi í bendingum og orði kom mér í skilning um að "jæja" merkir og getið nú............... EISTU BlushBlushBlushW00tW00tW00t

Núna reyni ég sko að segja ekki "jæja" meira, en er minnt á þetta minnst 100 sinnum á dag.

Segið svo að það sé ekki gaman að læra pólsku. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

Algjört slys þetta hjá þér Ásta mín eins og þú ert nú alltaf orðvör.

egvania, 30.10.2008 kl. 21:05

2 Smámynd: Líney

nei nú frussaði ég kafffinu á tölvuna

Líney, 31.10.2008 kl. 19:28

3 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Það er nefnilega það þetta rólega fólk læðir út úr sér ,skemmtilegum orðtökumKannast við þetta veltur vitleysan upp úr besta fólkinu Kærleikskveðja rugludósin í fjöleignarhúsinu í vesturbænum

Ólöf Karlsdóttir, 31.10.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjargfrúin

Höfundur

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir
Frúin á Bjargi hefur skoðanir á öllu :)
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...1290_826126
  • ...dscn1290
  • Mynd032
  • Mynd031
  • IMG 4297

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 30094

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband